Í gær spiluðu stelpurnar í m.fl. æfingaleik við Hött/Fjarðabyggð
í höllinni. Um 20 stelpur voru mættar í leikinn sem er frábært
miðað við þá mætingu sem var undir það síðasta fyrir páska. Arna
Rut og Telma Ýr spiluðu með okkur en þær eru tvær af
sterkustu leikmönnum sem Leiknir hefur getið af sér í gegnum árin.
Einnig mætti Bergdís Ýr í leikinn og sýndi gamalkunna takta og
ætlar jafnvel að taka fram skóna að nýju. Eins er Ásta Kristín
ákveðin í að vera með okkur í sumar sem styrkur okkur
umtalsvert.
Byrjunarliðið var þannig að í markinu var Agnes. Í vörninni voru
Sigdís, Ásta Kristín, Guðbjörg Rós og Freyja. Á miðjunni voru
Ingiborg, Sigurveig og Telma og á köntunum Una og Tanja. Arna Rut
var ein á toppnum. Á bekknum voru Bergdís, Arna, Unnur, Svanhvít,
Karín, Inga, Jórunn, Birna, Selma og Margrét og komu þær allar
við sögu í leiknum nema Jórunn sem sjálf vildi ekki fara inná.
Stelpurnar stóðu sig allar mjög vel og frábært fyrir þær að fá að
spila alvöru leiki svo snemma við frábærar aðsæður. Er ekki alveg
viss hvernig leikurinn endaði en held að Höttur/Fjarðabyggð hafi
unnið 6-5 eða 7-5. Skiptir kannski ekki öllu en skemmtilegur og
fjörugur leikur.
Nú rétt í þessu vorum við fegðar að ákveða að skella okkur til
Ívars til Reading og sjá leik Reading og Newcastle. Ekki leiðinlegt
það og er áætluð brottför 27. apríl og heimkoma aftur 1. maí.
Annars er framundan hjá mér að halda upp á merkan áfanga um
helgina þegar drengurinn sá nær þrítugu. Ljóst að tíminn líður
hratt á gervihnattaöld.
Kv. Viddi